Abler fyrir heilsurækt
Við þjónustum líkamsræktarstöðvar, crossfit, jóga og aðra heilsurækt af öllum stærðum og gerðum með heildstæðu lausna- og þjónustuframboði.

Sölukerfi fyrir áskriftir og námskeið

Áskriftarkerfi fyrir mismuandi aðildir
Með áskritarkerfi Abler getur þú boðið viðskiptavinum þínum upp á fjölbreyttar aðildir með sveigjanlegum aðgangsstýringum og skráningarmöguleikum.

Utanumhald um námskeið frá A-Ö
Við skráningu á námskeið færist viðskiptavinur í réttan hóp, dagskráin birtist samstundis í símanum, sjálfvirkur kynningarpóstur sendist og þjálfarar geta verið í beinum samskiptum við sinn hóp. Veittu viðskiptavinum þínum framúrskarandi þjónustu og hvatningu með skilvirkri og persónulegri upplýsingagjöf.
Öflug virkni til að þjónusta viðskiptavini

Tímabókunarkerfi (Abler Classes)
Gerðu framboð tíma sýnilegt í notendavænu viðmóti í appi og vef. Leyfðu meðlimum þínum að bóka sig í tíma eða skrá sig á biðlista svo þeir missi ekki af neinu. Abler Classes er beintengt Abler Shop svo meðlimir geta keypt áskrift og bókað sig í tíma í sömu andrá sem er skilvirk og þægileg þjónusta sem stuðlar að aukinni sölu áskrifta.

Birtu æfingu dagsins
Skipuleggðu fjölbreytta tímaáætlun á skilvirkan hátt, ákvarðaðu endurtekna tíma og smíðaðu æfingu dagsins með mismuandi erfiðleikastigum líkt og tíðkast í Crossfit.
Innra skipulag og skilvirkara starfsumhverfi

Skipan starfsfólks, dagskráar og mannvirkja
Fáðu betri yfirsýn yfir alla viðburði og raðaðu þjálfurum niður á tíma og æfingar. Búðu til þína sali og kennslurými og fylgstu með nýtingu mannvirkja í rauntíma.

Byggðu upp samfélag með persónlegum samskiptum
Okkar stafrænu lausnir gera þjálfurum kleift að styrkja tengsl við viðskiptavini með persónulegum samskiptum í faglegu og öruggu starfsumhverfi.
Aðgangsstýringar fyrir meðlimi og starfsfólk

Augnskannar, hlið og innskráningarviðmót
Hvort sem þú vilt einfalda innskráningu með spjaldtölvu eða tengja augnskanna og hlið, þá bjóðum við upp á úrval lausna til að þjónusta þína aðgangsstýringu.

Aðgangs- og réttindastýring starfsfólks
Hvort sem þú ert þjálfari, starfsmaður í móttöku, stöðvarstjóri eða bókari. Þá sér örugg og sveigjanleg réttindastýring Abler til þess að starfsmenn fái aðgang að þeim aðgerðum og upplýsingum sem endurspegla þeirra hlutverk.
Algengar spurningar
Kynntu þér betur Abler Gym verkfærasettið